Losun úrgangs hjá Impregilo samrýmdist ekki reglum fyrirtækisins

Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að úrgangur, sem flokkaður er sem spilliefnaúrgangur, hafi verið losaður með hætti sem samrýmist ekki umhverfisreglum fyrirtækisins. Um er að ræða olíutunnur með tuskum, sem grafnar voru í jörðu og hafa tunnurnar nú verið grafnar upp.

Yfirlýsing Impregilo er eftirfarandi:

    Í kjölfar ábendinga til umhverfis-, öryggis- og heilbrigðissviðs Impregilo í dag kom í ljós að úrgangur, sem flokkaður er sem spilliefnaúrgangur, var losaður með hætti er samræmis ekki ströngum umhverfisreglum fyrirtækisins. Þó svo að aldrei hafi verið hætta á ferðum hefur þegar hefur verið gripið til ráðstafana til þess að útiloka að umhverfistjón hljótist af.

    Málavextir eru þeir að grafnar voru í jörðu tvær 200 lítra tunnur með tuskum sem notaðar höfðu verið til þess að hreinsa olíu við Aðgöng 3, auk einar tómrar tunnu. Ástæðu atviksins má rekja til starfsmanns er vildi einfalda sér vinnuna og í stað þess að losa úrganginn með eðlilegum hætti ákvað hann að fara þessa óheppilegu leið. Þessum einstakling hefur þegar verið sagt upp störfum. Leiði rannsókn í ljós að aðrir starfsmenn fyrirtækisins hafi verið viðriðnir þetta atvik mun Impregilo einnig bregðast við með sama hætti hvað þá varðar.

    Impregilo leggur mikið upp úr því að verklagsreglur fyrirtækisins séu virtar og lítur þetta atvik mjög alvarlegum augum. Farið er ítarlega yfir verklagsreglur fyrirtækisins með öllum nýjum starfsmönnum og því þykir Impregilo ákaflega miður að reglur fyrirtækisins skyldu hafa verið brotnar með þessum hætti.

    Í dag hefur fyrirtækið grafið upp umræddar tunnur og komið úrgangi þeirra fyrir á eðlilegan hátt. Viðeigandi yfirvöldum hefur þegar verið tilkynnt um málið og unnið verður með þeim svo draga megi úr líkum að svona atvik endurtaki sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert