Fossaði af borgarísjaka við Húnaflóa

mbl.is/Arnar Ólafur Viggósson

Það fer ekki mikið fyrir frystitogaranum Arnari HU 1 þar sem hann skríður meðfram borgarísjaka af stærstu gerð. Ísjakinn var að lóna við Óðinsboða á Húnaflóa þegar Arnar var að koma inn til löndunar með aflaverðmæti upp á 115 m.kr. á laugardag.

„Við settum út tuðruna að gamni og strákarnir fóru upp að jakanum. Þetta var eins og eyja að stærð - minnti mann á þegar maður sér Grímsey úr fjarska," sagði Árni Sigurðsson skipstjóri. "Það var svo mikil bráðnun á jakanum í sólinni að á nokkrum stöðum voru fossar fram af brúninni á honum. Það eru nokkrir stórir jakar þarna að þvælast en þessi var langstærstur."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert