Litbolta skotið á bifreið í Sandgerði

Lögreglunni í Keflavík barst um eittleytið í nótt tilkynning um að litbolta hafi verið skotið á bifreið við Suðurgötu í Sandgerði, að því er fram kemur á vef lögreglunnar. Bleik málning var á bifreiðinni, en ekki er vitað hver skaut boltanum. Bannað er að skjóta úr litboltabyssu á almannafæri og þarf sérstakt leyfi til að skjóta á afgirtu svæði, sérstaklega ætlað til þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert