Skyrið rennur út

Mikil eftirspurn er eftir íslenskum matvælum í verslunum Whole Foods Market (WFM) í Bandaríkjunum og hefur íslenska skyrið hlotið góðar viðtökur að sögn Baldvins Jónssonar, framkvæmdastjóra Áforms.

„Skyrið rennur út. Við erum með tvær bragðtegundir, vanillu og bláberja, og á næstunni bætast við jarðarberjaskyr og hreint skyr. Skyrdós sem kostar 90 krónur á Íslandi selst á 2,99 dali stykkið (212 krónur) meðan sambærileg dós af bandarískri jógúrt kostar einn dollara,“ sagði Baldvin.

Þá hafa WFM-verslanirnar ákveðið að kaupa 140 tonn af íslensku smjöri í stórpakkningum og munu nota það í bakaríum sínum og við framleiðslu á tilbúnum réttum. Þeim þykir íslenska smjörið einkar gott til matargerðar. Fyrsti 20 tonna smjörgámurinn fer til Bandaríkjanna í þessari viku.

Efnt verður til Íslandsdaga í 29 WFM-verslunum í haust sem standa munu í þrjár vikur. Þá verða íslenskt kjöt, fiskur, ostar, grænmeti, súkkulaði, snyrtivörur, drykkjarvörur og fæðubótarefni kynnt sérstaklega.

Sjá nánar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert