Eldur í dýnu hjá Krossinum í Kópavogi

Eldur kom upp í húsnæði trúfélagsins Krossins við Hlíðarsmára í Kópavogi um kl. 20:30 í kvöld. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins logaði í dýnu í vistarverum í húsinu, en tekist hafði að ráða niðurlögum eldsins áður en slökkvilið kom á vettvang. Slökkvilið reykræsti húsnæðið, en ekki er talið að mikið tjón hafi verið af völdum elds eða reyks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert