Héldu að flugmaður væri í vandræðum

Ómar Ragnarsson við eins hreyfils flugvél.
Ómar Ragnarsson við eins hreyfils flugvél. mbl.is

Sjónarvottar tilkynntu lögreglunni á Egilstöðum um þrjúleytið í dag að sést hefði til eins hreyfils flugvélar sem virtist í vandræðum þar sem hún flaug mjög lágt. Flugvélin var ofan við Fljótsdalsheiði og hvarf fólki sjónum. Þarna var Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður á ferð og lenti hann vélinni á Egilsstaðaflugvelli, en veður var vont á þessum slóðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert