Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, Þorsteinn Hilmarsson, segir samninganefndir Alcan og Landsvirkjunar hafa komist að niðurstöðu um raforkuverð, komi til stækkunar álversins í Straumsvík. Samingurinn hefur þó ekki verið ritaður en því starfi mun líklega ljúka innan tveggja vikna. Samningaviðræður eru því á lokaspretti. Raforkuverðið verður ekki gefið upp.
Samningsdrög verða lögð fyrir stjórnir fyrirtækjanna en ekki er gert ráð fyrir að ráðist verði í verkefnið fyrr en að loknum kosningum í Hafnarfirði um það hvort leyfa eigi stækkun álversins, eins og bæjaryfirvöld þar hafa talað um. Þorsteinn segir að Alcan hafi þá forgang að rafmagni frá virkjunum úr Neðri-Þjórsá.
Hvað varðar upplýsingar um raforkuverð segir Þorsteinn að þær verði ekki gefnar upp þar sem þær varði við viðskiptahagsmuni Landsvirkjunar. Afskaplega erfitt sé fyrir fyrirtækið að ná góðum samningum um sölu á raforku ef hægt verði að vitna í fyrri samninga og eldra verð. Hagmsunir eigenda Landsvirkjunar liggi í því að viðkvæmar viðskiptaupplýsingar séu ekki gefnar upp. Aldrei hafi þó arðsemi af viðskiptum leyndarmál.
Þorsteinn segir álverð á heimsmarkaði ráða miklu um rafmagnsverð en álverð í heiminum er mjög hátt núna. Önnur íslensk fyrirtæki séu einnig með ákvæði um trúnað í sínum samningum. Upplýsingar um virkjun Neðri-Þjórsár má fá með því að smella á tengilinn.
Fréttir af undirbúningi virkjunar í Neðri-Þjórsá