Fæðingarorlofssjóður fluttur til Hvammstanga

Fæðingarorlofssjóður fluttist um áramótin frá Tryggingastofnun ríkisins til Vinnumálastofnunar og er skrifstofa sjóðsins á Hvammstanga.

Fram kemur í tilkynningu, að umsækjendum í fæðingarorlofi sé bent á að snúa sér til Fæðingarorlofssjóðs, Strandgötu 1, 530 Hvammstanga, með umsóknir sínar. Skattkortum foreldra af höfuðborgarsvæðinu á að skila á Engjateig 11, 105 Reykjavík en öll önnur gögn skal senda á Hvammstanga.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert