Sturla Böðvarsson fékk heiðursverðlaun

Sturla Böðvarsson fékk heiðursverðlaun Samstöðu.
Sturla Böðvarsson fékk heiðursverðlaun Samstöðu. mbl.is/RAX

Samstaða, áhugahópur um slysalausa sýn í umferðinni, afhenti í gær Sturlu Böðvarssyni, fyrrverandi samgönguráðherra, fyrstu heiðursverðlaun samtakanna fyrir framlag hans til umferðaröryggismála.

Um leið færði Sturla nýjum samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller, kefli fyrir hönd Samstöðu til merkis um að halda áfram starfi samgönguyfirvalda að fækkun umferðarslysa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert