Byrjað að taka upp kartöflur á morgun

Birkir Ármannsson í Brekku ætlar að taka upp kartöflur í …
Birkir Ármannsson í Brekku ætlar að taka upp kartöflur í fyrramálið.

Fyrstu íslensku kartöflur sumarsins verða teknar upp í fyrramálið hjá Birki Ármannssyni, bónda í Brekku í Þykkvabæ. Kartöflunum verður strax ekið til Reykjavíkur, þeim pakkað í sérmerktar umbúðir og komið í verslanir þar sem þær verða í hillunum undir hádegið.

Fram kemur í tilkynningu frá Sambandi garðyrkjubænda kemur fram, að Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, fær fyrst að smakka á uppskeru ársins ásamt Þórhalli Bjarnasyni, formanni Sambands garðyrkjubænda og öðrum valinkunnum sérfræðingum í íslensku kartöflunni, til dæmis Hrefnu Sætran yfirkokki á Fiskmarkaðnum og Loga Ólafssyni, knattspyrnuþjálfara.

Kartöflur verða teknar upp daglega næstu vikurnar, sendar í verslanir jafn óðum, og eykst uppskeran frá degi til dags.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert