Undirritun fyrstu leigusamningana á Varnarsvæðinu

Þær Kamilla Guðmundsdóttir leigjandi og Hrafnhildur Valdimarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Keili, …
Þær Kamilla Guðmundsdóttir leigjandi og Hrafnhildur Valdimarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Keili, sjást hér undirrita fyrsta leigusamninginn um nemendaíbúð á Keflavíkurflugvelli.

Fyrstu íbúarnir á gamla Varnarsvæðinu komu í morgun til undirritunar leigusamninga um íbúðir sínar fyrir næsta vetur. Undirritun leigusamninga fer fram í dag og á morgun en alls er áætlað að um 700 manns muni búa, nema og starfa á svæðinu frá ágústlokum.

Fram kemur í tilkynningu að flestir íbúanna séu nemendur við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík en rúmlega 100 nemendur munu stunda nám sitt á Vellinum við nýja Frumgreinadeild Keilis sem hefur starfsemi í haust.

Umsóknir bárust um allar þær 300 íbúðir sem til útleigu voru í þessum áfanga en gert er ráð fyrir að hægt verði að bæta við allt að 50 íbúðum sem nú eru lausar til umsóknar. Innifalið í hagstæðu leiguverði eru strætisvagnasamgöngur við háskóla á Reykjavíkursvæðinu, rafmagn, hiti og nettenging. Allar upplýsingar um íbúðirnar er að finna á www.keilir.net.

Nýr leikskóli og grunnskóli munu þjóna íbúum svæðisins en þar verður einnig starfrækt íþróttamiðstöð, verslun, veitingastaður og kaffihús. Íbúðir á Vellinum eru til sýnis í dag fyrir væntanlega leigjendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert