Barn hjólaði á mikilli ferð á bíl

Barn á reiðhjóli hlaut minniháttar meiðsl er það hjólaði á bifreið á Ísafirði skömmu eftir klukkan eitt í dag. Tvær stúlkur voru að hjóla niður Hallabrekku og ók önnur þeirra í veg fyrir bíl sem kom akandi eftir Túngötu sem liggur þvert á Hallabrekku. Ökumaður bifreiðarinnar náði að snarbremsa og koma þannig í veg fyrir a hann æki á stúlkuna. Hin stúlkan hjólaði hins vegar á talsverðri ferð inn í hlið bílsins.

Hún var með reiðhjólahjálm og reyndist ekki alvarlega slösuð. Lögreglan á Ísafirði vill þó hvetja foreldra og forráðamenn barna til að brýna fyrir börnum sínum að passa sig á umferðinni og segir að lærdómur vetrarins vilji oft gleymast í leik sumarsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert