Björn Th. Björnsson látinn

Björn Th. Björnsson
Björn Th. Björnsson

Björn Th. Björnsson, listfræðingur og rithöfundur, andaðist á líknardeild Landakotsspítala 25. ágúst, nær 85 ára að aldri.

Björn fæddist í Reykjavík 3. september 1922. Foreldrar hans voru Baldvin Björnsson gullsmiður og Martha Clara Björnsson, fædd Bemme, húsmóðir.

Björn ólst upp í Reykjavík og Vestmannaeyjum og lauk stúdentsprófi frá MR 1943. Hann nam listasögu við Edinborgarháskóla, Lundúnaháskóla og Kaupmannahafnarháskóla.

Björn kenndi listasögu við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Kennaraskóla Íslands og síðar Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Hann var m.a. fulltrúi í útvarpsráði og í undirbúningsnefnd um stofnun íslensks sjónvarps, sat í menntamálaráði og var formaður og varaformaður Rithöfundasambands Íslands. Þá var Björn forstöðumaður Listasafns Háskóla Íslands.

Björn var afkastamikill rithöfundur og liggja m.a. eftir hann bækur um íslenska listasögu og listamenn, skáldsögur og heimildaskáldsögur, endurminningar, sagnaþættir, þjóðlegur fróðleikur, leikrit og þýðingar. Björn hlaut fyrstu verðlaun í skáldsagnasamkeppni menntamálaráðs 1959 fyrir Virkisvetur og bókmenntaverðlaun DV 1988 fyrir Minningarmörk í Hólavallakirkjugarði.

Eftirlifandi eiginkona Björns er Ásgerður Búadóttir myndlistarmaður. Þau eignuðust þrjú börn, Baldvin, Björn Þránd og Þórunni, sem öll lifa föður sinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert