Forsætisráðherra skoðar æskuslóðir Björnsons

mbl.is/Ásdís

Davíð Oddsson forsætisráðherra er nú staddur í Noregi ásamt föruneyti þar sem hann mun flytja ræðu við opnun Björnstjerne Björnson bókmenntahátíðarinnar á morgun. Á myndinni sem Ásdís Ásgeirsdóttir tók í morgun er Davíð ásamt eiginkonu sinni Ástríði Thorarensen, Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og Knut Ödegaard framkvæmdastjóra bókmenntahátíðarinnar, á Nesset prestssetrinu við Raumsdalsfjörð í Noregi en þar ólst Björnstjerne Björnson upp. Þessa stundina eru Davíð og Bodevik að renna fyrir lax í ánni Eiru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert