Líkamsárás í Hafnarstræti: Gæsluvarðhald framlengt til 15. júlí

Gæsluvarðhaldsvist tveggja karlmanna, sem eru í haldi vegna líkamsárásar í Hafnarstræti, hefur verið framlengd til 15. júlí. 22 ára karlmaður, sem mennirnir réðust á, lést af áverkum sínum á gjörgæsludeild Landspítala-háskólasjúkrahúsi síðastliðinn sunnudag. Árásarmennirnir, sem eru 20 og 23 ára, hafa játað að hafa ráðist á manninn að morgni 25. maí. Samkvæmt upplýsingum lögreglu miðar rannsókn málsins vel áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert