Arna leiðir Í-listann

Ísafjörður.
Ísafjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

Framboðslisti Í-listans í ísafjarðarbæ var samþykktur á stuðningsmannafundi 23. apríl. Arna Lára Jónsdóttir og Kristján Andri Guðjónsson bæjarfulltrúar leiða listann, en í þriðja sæti er Nanný Arna Guðmundsdóttir leikskólakennari og framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Aurora á Ísafirði og í fjórða sæti er Sigurður Hreinsson iðnfræðingur frá Auðkúlu í Arnarfirði. Fimmta sætið skipar Gunnhildur Elíasdóttir verkakona á Þingeyri. Listinn í heild er þannig skipaður:

1. Arna Lára Jónsdóttir, starfsmaður Nýsköpunarmiðstöðvar, Ísafirði
2. Kristján Andri Guðjónsson, útgerðarmaður, Ísafirði
3. Nanný Arna Guðmundsdóttir, leikskólakennari og framkvæmdastjóri, Ísafirði
4. Sigurður Hreinsson, iðnfræðingur, Ísafirði
5. Gunnhildur Elíasdóttir, verkakona, Þingeyri
6. Gunnar Jónsson, myndlistarmaður og leiðbeinandi, Ísafirði
7. Erla Rún Sigurjónsdóttir, ljósmóðir, Ísafirði
8. Aron Guðmundsson, útkeyrslumaður, Ísafirði
9. Agnieszka Tyka, bakari og afgreiðslumaður, Ísafirði
10. Magnús Bjarnason, viðskiptafræðingur, Ísafirði
11. Inga María Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri, Ísafirði
12. Sigurður Hafberg, kennari, Flateyri
13. Guðný Harpa Henrysdóttir, leiðbeinandi, Ísafirði
14. Ólafur Baldursson, véla-og verkamaður, Ísafirði
15. Svava Rán Valgeirsdóttir, leikskólastjóri, Suðureyri
16. Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri, Ísafirði
17. Helga Björk Jóhannsdóttir, leikskólastjóri, Ísafirði
18. Svanhildur Þórðardóttir, safnvörður, Ísafirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert