Forval endurtekið vegna mistaka

Vegna mistaka sem urðu við útgáfu og útsendingu kjörgagna, ákvað kjörstjórn í Norðvesturkjördæmi,  í samráði við formann flokksins, að senda út ný kjörgögn með skýrari leiðbeiningum og að fram fari  nýtt forval hið allra fyrsta.

Þetta kemur fram á heimasíðu Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs.

Þar segir ennfremur að ný kjörgögn verði send á  allra næstu dögum öllum sem skráðir voru félagar hinn 21. ágúst sl.

Tekið er fram að kjörseðlar muni verða í öðrum lit til frekari aðgreiningar.

Loks segir að þeim svarsendingum sem hafi nú þegar borist, verði eytt á viðeigandi hátt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert