„Fjandi lítið og lélegt fylgi“

Vilhjálmur Bjarnason skipar 5. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Vilhjálmur Bjarnason skipar 5. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Mér finnst það í fyrsta lagi sárt að ég sé ekki inni og í öðru lagi þá finnst mér þetta fjandi lítið og lélegt fylgi eftir ágæta stjórnartíð,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Vilhjálmur er meðal þeirra þingmanna sem munu detta út af þingi samkvæmt nýjustu könnun Fé­lags­vís­inda­stofn­unar Há­skóla Íslands sem gerð var fyr­ir Morg­un­blaðið á fylgi flokk­anna fyr­ir alþing­is­kosn­ing­arn­ar 29. októ­ber.

Sjá frétt mbl.is: Áfram sveiflast fylgið

Sam­kvæmt könnuninni eru Pírat­ar stærsti flokk­ur lands­ins með 23% fylgi. Sjálf­stæðis­flokk­urinn kemur þar á eftir með 21% fylgi. Vilhjálmur hefur setið á þingi frá 2013 og skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. „Ég er bjartsýnn og trúi enn á könnunina sem birtist hjá Stöð 2 í gærkvöldi, þá var ég inni.“ Vilhjálmur segist ekki vera farinn að hugsa út í hvað hann muni taka sér fyrir hendur ef niðurstaðan verði sú að hann nái ekki kjöri. „En í versta falli verð ég kennari í viðskiptafræðinni.“

Stefnir á að vera þingmaður áfram

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mæl­ist með 9% fylgi í könnuninni og fengi sex þing­menn kjörna. Karl Garðarsson skipar 1. sæti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og kæmist ekki inn á þing samkvæmt könnuninni. „Miðað við þessar heildartölur hjá flokknum þá kemur það ekki á óvart að ég skuli ekki vera inni í Reykjavík norður, þetta er efiðasta kjördæmi flokksins og hefur verið það til þessa,“ segir Karl í samstali við mbl.is. Meðal ástæða þess að kjördæmið reynist Framsóknarmönnum erfitt nefnir Karl að Píratar séu til að mynda mjög sterkir í kjördæminu.

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, skipar 1. sæti á lista flokksins …
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, skipar 1. sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karl telur að miklar sveiflur verði á fylgi flokkanna síðustu viku fyrir kosningar. „ Ég hef mikla trú á því að við munum bæta við okkur ansi miklu á þessari síðustu viku fyrir kosningar og verðum með meira fylgi en þetta.“ Karl hefur ekki leitt hugann að því hvað taki við hjá honum eftir kosningar, nái hann ekki kjöri. „Ég stefni bara að því að vera þingmaður áfram, það er ekkert öðruvísi með það.“

Reynd­ir þing­menn Samfylkingarinnar detta út

Ef rýnt er í fylgi flokkanna í ein­stök­um kjör­dæm­um sést meðal annars að Samfylkingin næði ekki inn manni í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, en þar leiðir Össur Skarp­héðins­son þingmaður list­ann. Össur er meðal reyndustu manna á þingi, en hann hefur gegnt þingmennsku frá 1991.

Össur Skarphéðinsson hefur setið á þingi frá árinu 1991. Samkvæmt …
Össur Skarphéðinsson hefur setið á þingi frá árinu 1991. Samkvæmt nýjustu könnun Félagsvísindastofnunar HÍ mun Össur detta út af þingi í komandi kosningum. Össur skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður. mbl.is/Ómar Óskarsson

Aðrir reynd­ir þing­menn sem ekki næðu inn á þing, ef kosn­ing­ar færu á sama veg og niður­stöður könn­un­ar­inn­ar, eru meðal annars Helgi Hjörv­ar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, en hann hefur setið á þingi frá 2003.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert