Valkostirnir hafa kristallast

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Við höfum verið að mælast á bilinu 21 - 28% á undanförnum tveimur vikum og teljum að við liggjum þar á milli. Við stefnum á að enda í efri hluta þessa bils,“ sagði Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við mbl.is.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 21,1% fylgi í skoðanakönnun sem Fé­lags­vís­inda­stofn­un Há­skóla Íslands gerði fyr­ir Morg­un­blaðið á fylgi flokk­anna fyr­ir alþing­is­kosn­ing­arn­ar 29. októ­ber.

Frétt mbl.is: Áfram sveiflast fylgið

Samkvæmt þessu fengi flokkurinn 15 þingmenn kjörna og myndi missa fjóra menn en flokkurinn fékk 19 menn kjörna í kosningunum fyrir þremur árum.

„Það sem kjósendur geta séð af þessu er að án Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn þá stefnir hér í hreina vinstri stefnu að kosningum afstöðnum og að því leytinu til hafa undanfarnir dagar verið ágætir,“ sagði Bjarni og bætti við að valkostirnir hefðu kristallast:

„Þetta verður ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum eða ríkisstjórn með Pírötum og Vinstri Grænum.

Aðspurður hvort Bjarni íhugaði að segja af sér sem formaður Sjálfstæðisflokksins ef þetta yrði niðurstaðan í kosningunum eftir átta daga var svarið einfalt: „Ég ætla ekki að svara svona spurningum sem eru allar í viðtengingarhætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert