Hótaði sjómönnum ekki lagasetningu

Lilja Alfreðsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Lilja Alfreðsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Samsett mynd

Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar, í þættinum Sprengisandi hvort rétt væri að hún hefði hótað að setja lög á sjómannaverkfallið aðfaranótt laugardagsins sem verkfallið leystist.

„Það gerði ég ekki,“ sagði Þorgerður Katrín. „En menn vissu það alveg. Loðnan var komin og meira að segja sjómannaforystan sagði við okkur á einum fundi „við áttum okkur á hvað þarf að gera ef við náum ekki saman“,“ segir Þorgerður Katrín. „En menn náðu saman og leystu þetta.“

Sagði hún málið hins vegar viðkvæmt hjá Framsóknarflokknum, þar sem ekki hefðu verið samþykktar kröfur Gunnars Braga Sveinssonar, sem þá var þingmaður Framsóknarflokksins, og annars Framsóknarþingmanns um að stjórnvöld stigju inn í deiluna. „Og það hefði kostað landsmenn hálfan milljarð,“ segir Þorgerður Katrín.

Sagði Lilja það ekki breyta því að stjórnin hefði ekki vera búin að fara í neina vinnu við að skoða hvernig landið lá.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert