Stíf fundahöld í allan dag

Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson í ráðherrabústaðnum …
Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson í ráðherrabústaðnum í gær. mbl.is/​Hari

Formenn flokkanna þriggja sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum munu halda áfram fundahöldum sínum í dag en formennirnir eru ekki á fundi sem stendur.

Bæði munu þau funda sjálf og einnig með hagsmunaðilum, eða Öryrkjabandalaginu, Landssambandi eldri borgara og Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans.

Samhliða þessum viðræðum munu málefnahópar halda áfram vinnu sinni við að skrifa stjórnarsáttmála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert