Ellefu karlar og ellefu konur

Jóhann Friðrik Friðriksson, oddviti framsóknarmanna í Reykjanesbæ.
Jóhann Friðrik Friðriksson, oddviti framsóknarmanna í Reykjanesbæ. Ljósmynd/Framsókn í Reykjanesbæ

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor var samþykktur á félagsfundi sem fram fór í gær. Framboðslistann skipa 11 karlar og 11 konur. Fyrsta sætið skipar Jóhann Friðrik Friðriksson lýðheilsufræðingur, annað sætið Dílana Hilmarsdóttir forstöðumaður og það þriðja Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir kennslufræðingur.

Listi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ:

1. Jóhann Friðrik Friðriksson lýðheilsufræðingur
2. Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar
3. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir kennslufræðingur
4. Trausti Arngrímsson viðskiptafræðingur
5. Bjarni Páll Tryggvason flugumferðarstjóri
6. Eva Stefánsdóttir viðskiptafræðingur
7. Sigurður Guðjónsson, löggiltur bifreiðasali
8. Halldór Ármannsson útgerðarmaður
9. Magnea Herborg Björnsdóttir leikskólakennari
10. Jóhanna María Kristinsdóttir söngkona
11. Andri Fannar Freysson tölvunarfræðingur
12. Aðalheiður Halldórsdóttir grunnskólakennari
13. Guðmundur Stefán Gunnarsson, ráðgjafi á velferðarsviði og júdókappi
14. Drífa Sigfúsdóttir, fyrrv. forseti bæjarstjórnar
15. Róbert Jóhann Guðmundsson málarameistari
16. Andrea Ásgrímsdóttir PGA-golfkennari
17. Hólmfríður Guðmundsdóttir ellilífeyrisþegi
18. Freyr Sverrisson knattspyrnuþjálfari
19. Ólafía Guðrún Lóa Bragadóttir tollvörður
20. Oddný Mattadóttir húsmóðir
21. Ingvi Þór Hákonarson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
22. Kristinn Þór Jakobsson, bæjarfulltrúi og viðskiptafræðingur

Frá fundinum.
Frá fundinum. Ljósmynd/Framsókn í Reykjanesbæ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert