Vonbrigði að vera ekki á listanum

Áslaug Friðriksdóttir.
Áslaug Friðriksdóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Mér líst vel á nýju konurnar á framboðslistanum og hef reyndar heyrt að þær séu skoðanasystur mínar í mörgum málum. Vonandi munu þær fylgja skoðunum sínum eftir og kanna öll mál með opnum huga. Flokkurinn þarf ekki á því að halda að allir séu steyptir í sama mót.“

Þetta segir Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni en hún varð ekki fyrir valinu á framboðslista flokksins vegna borgarstjórnarkosninganna í vor sem samþykktur var á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í borginni í gær.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Áslaugar að enginn getið gengið að neinu vísu í stjórnmálum. Góður stuðningur í prófkjörum hafi litla þýðingu „þegar leikreglum er breytt og uppstillingarvaldið sett í fárra hendur.“ Ekki kemur fram í færslunni hvað átt er við en ekki hefur náðst í Áslaugu í dag. 

„Mér eru það vissulega vonbrigði að eiga ekki sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Ég óskaði eftir að skipa 2. sæti listans, þrátt fyrir að vita að ég hefði ekki stuðning meirihluta kjörnefndar nema nýr leiðtogi styddi þá tillögu. Svo reyndist ekki vera og því fór sem fór.“

Áslaug segir að á undanförnum mánuðum hafi verið reynt að tala niður fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. „Stundum hefur mátt skilja af umræðunni og á staðhæfingum ýmissa vitringa að fylgi borgarstjórnarflokksins sé minna en fylgi flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir Alþingiskosningar. Þetta er ekki rétt og má minna á að í skoðanakönnun í ágúst mældist stuðningur við borgarstjórnarflokkinn 34%.“

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins þurfi í komansi kosningabaráttu að byggja ofan á þetta fylgi til að ná settu marki. „Öll skilyrði fyrir góðum árangri eru til staðar. Ég óska þeim alls hins besta í þeirri baráttu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert