Halla Björk Reynisdóttir, flugumferðarstjóri og fyrrverandi bæjarfulltrúi, verður í efsta sæti Lista fólksins á Akureyri við bæjarstjórnarkosningarnar í vor. L-listinn fagnaði 20 ára afmæli með kaffisamsæti í menningarhúsinu Hofi um helgina og þá var tilkynnt hverjir skipa listann við kosningarnar.
Athygli vekur að Brynhildur Pétursdóttir, fyrrverandi alþingismaður Bjartrar framtíðar, tekur sæti á L-listanum.
Halla Björk Reynisdóttir sat í bæjarstjórn fyrir L-listann kjörtímabilið 2010 til 2014 þegar listinn náði hreinum meirihluta, sex bæjarfulltrúum, og var formaður bæjarráðs um tíma. L-listinn fékk tvo menn kjörna fyrir fjórum árum og er í meirihlutasamstarfi við Framsóknarflokk og Samfylkingu.
Þessir skipa L-listann við kosningarnar í vor.
1. Halla Björk Reynisdóttir
2. Andri Teitsson
3. Hildur Betty Kristjánsdóttir
4. Þorgeir Finnsson
5. Geir Kristinn Aðalsteinsson
6. Anna Fanney Stefánsdóttir
7. Þorsteinn Hlynur Jónsson
8. Anna Hildur Guðmundsdóttir
9. Víðir Benediktsson
10. Brynhildur Pétursdóttir
11. Jón Þorvaldur Heiðarsson
12. Guðrún Karítas Garðarsdóttir
13. Róbert Freyr Jónsson
14. Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
15. Maron Pétursson
16. Birna Baldursdóttir
17. Helgi Snæbjarnarson
18. Ólöf Inga Andrésardóttir
19. Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
20. Matthías Rögnvaldsson
21. Silja Dögg Baldursdóttir
22. Oddur Helgi Halldórsson