Anna Alexandersdóttir, forseti bæjarstjórnar, leiðir lista Sjálfstæðismanna og óháðra á Fljótsdalshéraði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Listinn hlaut samþykki fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði í gær, sumardaginnfyrsta.
Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs, er í öðru sæti og Berglind Harpa Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, í því þriðja.
Í tilkynningu frá framboðinu segir að öflugur hópur ungs fólks tekur sæti ofarlega á listanum sem ekki hefur áður skipaðsæti á listanum í sveitarstjórnarkosningum. Alls skipa 10 konur og átta karlmenn listann.
Framboðslista Sjálfstæðismanna og óháðra á Fljótsdalshéraði skipa:
- Anna Alexandersdóttir, verkefnisstjóri og forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Jónsson, bóndi og formaður bæjarráðs
- Berglind Harpa Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MS í heilbrigðisvísindum
- Karl Lauritzson, viðskiptafræðingur
- Sigrún Hólm Þórleifsdóttir, viðskiptafræðingur
- Sigurður Gunnarsson, ferliseigandi skaut- og álframleiðslu
- Davíð Þór Sigurðarson, verkefnisstjóri
- Ívar Karl Hafliðason, umhverfis- og orkufræðingur
- Eyrún Arnardóttir, kennari og dýralæknir
- Hrafnhildur Linda Ólafsdóttir,aðstoðarframkvæmdarstjóri
- Guðný Margrét Hjaltadóttir, viðskiptafræðingur
- Sigrún Harðardóttir, félagsráðgjafi
- Aðalsteinn Jónsson, búfræðingur, fyrrverandi bóndi nú í ferðaþjónustu
- Helgi Bragason, skógarbóndi
- Ágústa Björnsdóttir, fjármálasérfræðingur hjá Alcoa Fjarðaáli
- Guðrún Ragna Einarsdóttir, þjónustufulltrúi og bóndi
- Sigvaldi H.Ragnarsson, sauðfjárbóndi
- Sigríður Sigmundsdóttir, matreiðslu- og framleiðslumaður