Íris efst á lista Fyrir Heimaey

Listinn var kynntur í Vestmannaeyjum í dag.
Listinn var kynntur í Vestmannaeyjum í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Framboðslisti bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í næsta mánuði var samþykktur einróma á fundi félagsins í dag, en listinn var kynntur í Eyjum klukkan 17.

Oddviti listans er Íris Róbertsdóttir, fjármálastjóri og grunnskólakennari, og í öðru sætinu er Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og viðskiptafræðingur.

Þetta kemur fram á fréttavefnum Eyjar.net. Eftirfarandi er listinn í heild sinni:

  1. Íris Róbertsdóttir, fjármálastjóri / grunnskólakennari.
  2. Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri / viðskiptafræðingur.
  3. Elís Jónsson, tæknifræðingur / vélstjóri.
  4. Guðmundur Ásgeirsson, endurskoðandi / fjárfestir.
  5. Hrefna Jónsdóttir, starfsmannastjóri / þroskaþjálfi.
  6. Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri.
  7. Kristín Hartmannsdóttir, gæðastjóri / tækniteiknari.
  8. Alfreð Alfreðsson, leiðsögumaður.
  9. Aníta Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri / viðskiptafræðingur.
  10. Hákon Jónsson, nemi.
  11. Guðný Halldórsdóttir, sjúkraliði.
  12. Styrmir Sigurðarson, bráðatæknir / yfirmaður sjúkraflutninga á Suðurlandi.
  13. Emma Sigurgeirsdóttir Vídó, leikskólakennari.
  14. Leifur Gunnarsson, eldri borgari.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert