Niðurstaða á morgun
Bloggað um fréttina
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirHreinsum til í Alþingishúsinu
-
Heiða B. HeiðarsAf hverju látum við bjóða okkur þetta?
-
Friðrik BjörgvinssonÉg óska ekki stjórnleysis
-
Sigurjón Norberg KjærnestedAugljós leikur - fólk hlýtur að sjá í gegnum
-
Þór JóhannessonRíkisstjórn Íslands - myndmál
-
Lárus VilhjálmssonSjöllum settir úrslitakostir?
-
Njörður HelgasonDrífið ykkur. Þjóðin bíður!
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirRugluð ríkisstjórn
-
Sveinn HjörturStjórnarslit? Eða áframhald með "breytingum"?
-
Einar Oddur ÓlafssonEinn málsháttur
-
Asdis SigEkkert mála að bíða til morguns.
-
Jón Rúnar IpsenNiðurstaða á morgun
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, og Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, áttu annan fund með Geir H. Haarde og öðrum forustumönnum Sjálfstæðisflokksins nú síðdegis.
Fundinum er nú lokið og sagði Ingibjörg að niðurstaða væri ekki fengin og yrði væntanlega ekki ljós fyrr en á morgun.
Ingibjörg Sólrún sagði við blaðamenn í dag, að Samfylkingin gerði kröfur um að það færi fram hreinsun og tiltekt í stjórnkerfinu. Björgvin G. Sigurðsson hefði sýnt fordæmi í morgun með Fjármálaeftirlitið og þá hlyti athyglin að beinast að Seðlabankanum í kjölfarið.
Þá sagði hún að ástæða kynni að vera til að skoða breytingar á verkstjórn innan ríkisstjórninnar en engin skilyrði hefðu verið sett. Hún sagði m.a. að flokkarnir hlytu að gera hreint fyrir sínum dyrum í kosningabaráttunni í vor hver afstaða þeirra væri til Evrópumála.
Hún sagði, að forsvarsmenn flokkanna hefðu átt ágætt spjall um þær hugmyndir sem uppi eru um breytingar í stjórnkerfinu. Hún sagðist ekki hafa átt viðræður við aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn í dag.
Til baka








Senda inn efni



