Ágúst Ólafur hættir

Ágúst Ólafur Ágústsson.
Ágúst Ólafur Ágústsson. mbl.is/Golli

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar og þingmaður, hefur ákveðið að  sækjast ekki eftir endurkjöri til Alþingis í kosningunum í vor. Hann ætlar einnig að hætta sem varaformaður flokksins á næsta landsfundi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann hefur sent frá sér.

„Nýliðna helgi ræddi ég við formann Samfylkingarinnar og skýrði henni frá því að ég hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri til Alþingis í kosningunum í vor. Af þeirri ástæðu greindi ég henni jafnframt frá því að ég myndi ekki sækjast eftir ráðherraembætti vegna þeirra breytinga sem fyrir lágu.

Við áttum gott samtal og vorum sammála um að rétt væri að bíða með að tilkynna um ákvörðun mína, þar til niðurstaða væri fengin um það hvort ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks yrði framhaldið. Á þeim tímapunkti var enn ekki ljóst hver niðurstaðan yrði í þeim efnum. Nú liggur það fyrir og tel ég því rétt að greina frá þessari ákvörðun minni.

Ákvörðun af þessum toga á sér auðvitað nokkurn aðdraganda. En þegar sú staða kom upp að þingkosningum yrði flýtt og að framundan væri nýtt fjögurra ára kjörtímabil, var ekki hjá því komist að við hjónin gerðum upp hug okkar til framtíðarinnar. Við höfum um nokkra hríð haft hug á því að halda utan í framhaldsnám og höfðum við upphaflega ráðgert að söðla um í lok þessa kjörtímabils. Sá tímapunktur ber nú að nokkru fyrr en við hugðum, en við erum ákaflega sátt við þessa ákvörðun.

Ólíkt þeim sem hætta á þingi á efri árum, þá lít ég ekki á þessar málalyktir sem svo, að ég sé alfarið hættur að taka þátt í stjórnmálum. Ég hyggst beita mér af fullum þunga á Alþingi fram til kosninga og vitaskuld starfa áfram í Samfylkingunni. Ákvörðun mín felur það þó í sér að ég mun láta af embætti varaformanns Samfylkingarinnar á næsta landsfundi flokksins.

Ég vil þakka öllum þeim sem ég hef átt í samskiptum við í störfum mínum undanfarin ár, samstarfsfélögum og stuðningsfólki. Að lokum óska ég nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í þeim erfiðu verkefnum sem bíða hennar."

mbl.is

Bloggað um fréttina