Fjármál Lúðvíks ekki ástæðan

Lúðvík Bergvinsson.
Lúðvík Bergvinsson.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Morgunblaðsins um Lúðvík Berginsson alþingismann og formann þingflokks Samfylkingarinnar, í dag sunnudag. Þar hafnar Jóhanna því að fjármál Lúðvíks hafi komið í veg fyrir að hann fengi úthlutað embætti dóms- og kirkjumálaráðherra í minnihlutastjórn Jóhönnu.

„Þessi fullyrðing er ekki sannleikanum samkvæm. Frá upphafi stjórnarmyndunarviðræðna Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs lá fyrir að lögð var áhersla á að fá utanaðkomandi fagaðila til þess að gegna embætti ráðherra bankamála og dómsmála,“ segir í yfirlýsingu forsætisráðherra.

mbl.is

Bloggað um fréttina