Sterkur endurnýjaður hópur
Bloggað um fréttina
-
Paul NikolovTil hamingju, okkar öll
-
Haukur GunnarssonFyrir hverja, ekki fyrir hinn almenna launamann,
-
Jóhannes RagnarssonSterkir listar fyrir hverja?
-
Þóra GuðmundsdóttirFlottasti listinn, hingað til.
-
Hallgrímur GuðmundssonNýtt andlit Katrínar
-
Jónas EgilssonUmhverfisstefnu VG varpað fyrir róða?
-
Þórður Björn SigurðssonHvað ætla VG að gera vegna efnahagsvanda
„Ég held að þetta sé bara flott. Við vorum með gott framboð af fólki og fáum sterkan lista út úr þessu,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, sem vermir nú 1. sæti á lista Vinstri-grænna í Reykjavík fyrir þingkosningarnar í vor.
„Þetta er blanda af gömlu og nýju. Ég held við séum að fá heilmikla endurnýjun,“ segir hún. Kallað hafi verið eftir endurnýjun að undanförnu og hún hafi skilað sér. Góður árangur Lilju Mósesdóttur sé kannski það óvæntasta við forvalið, sem fram fór í gær.
„Mér líst vel á þetta og ég er bjartsýn fyrir hönd þessara tveggja lista,“ segir Katrín, en forvalið gilti fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin.
Til baka








Senda inn efni



