Fólk vildi breytingar
„Það var greinilegt að fólk vildi breytingar. Ég var hvattur til að fara í þetta aftur,“ segir Snorri Finnlaugsson fjármálastjóri sem sigraði í prófkjöri sjálfstæðismanna á Álftanesi í gær. Hann mun þannig þurfa að takast á við erfiða stöðu bæjarsjóðs.
Snorri mun leiða lista sjálfstæðismanna við sveitarstjórnakosningarnar í maí, að er að segja ef þar verður kosið.
Mikil óvissa er í bæjarfélaginu vegna erfiðrar fjárhagsstöðu bæjarsjóðs. Tillögur um að skipa sérstaka fjárhaldsstjórn til að vinna með bæjarstjórn bíða afgreiðslu samgönguráðherra og rætt hefur verið um að sameina Álftanes öðru sveitarfélagi.
Snorri reiknar með að það taki nokkurn tíma að vinna að sameiningu og telur víst að kosið verði til bæjarstjórnar í vor.
Snorri er enginn nýgræðingur í bæjarmálunum á Álftanesi því hann sat þar í bæjarstjórn 1998 til 2005. Þá flutti hann á Selfoss og sat í bæjarstjórn þar í tvö ár, að fjölskyldan flutti aftur á Álftanes fyrir rúmu ári.
Hann viðurkennir að hik hafi komið á hann þegar hann fékk hvatningu um að fara í framboð en lét svo slag standa. „Þetta er bara verkefni sem þarf að vinna. Við þurfum að vinna úr þessari stöðu,“ segir hann.
Snorri hefur alla tíð starfað við rekstur, fjármál og bókhald og reiknar með að sú reynsla hafi aflað honum trausts í prófkjörinu.
Til baka








Senda inn efni


