Sex í forvali Samfylkingarinnar
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur BaldurssonSex í forvali Samfylkingarinnar í Árborg
Sex frambjóðendur gefa kost á sér í forvali Samfylkingarinnar í Árborg, fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar, sem fer fram þann 20. febrúar n.k. Verður niðurstaða þess bindandi fyrir fjögur efstu sæti framboðslistans.
Anna Guðmundsdóttir ráðgjafi í Íslandsbanka
Arna Ír Gunnarsdóttir sviðsstjóri á Svæðisskrifstofu fatlaðra
Eggert Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri og varabæjarfulltrúi
Gylfi Þorkelsson kennari og bæjarfulltrúi
Kjartan Ólason framhaldsskólakennari
Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri og bæjarfulltrúi.
Kosningarétt hafa allir félagar í Samfylkingunni sem búsettir eru í Árborg og getur fólk gengið í Samfylkinguna alveg fram á kjördag. Þrír sameiginlegir framboðsfundir verða haldnir til kynningar á frambjóðendum, á Eyrarbakka 16. febrúar, á Stokkseyri 17. febrúar og á Selfossi 18. febrúar.
Til baka








Senda inn efni



