Mótmælafundur við Stjórnarráðið

mbl.is/Júlíus

Mótmælafundur hófst við Stjórnarráðið við Lækjartorg laust eftir klukkan 17:30 í dag. Um 20 nemendur úr Listaháskóla Íslands lögðust á lóðina í hvítum klæðum sem þeir höfðu málað með rauðu litarefni. Lögregla gerði nokkra brúsa með rauðri málningu upptæka en málningu var skvett á Stjórnarráðið fyrr í dag. Námsmennirnir lögðu áherslu á að þeir ætluðu ekki að nota litarefnið í öðrum tilgangi en að lita föt sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert