
| |
| |
| |
| |
| |
jonpetur@mbl.is
Íslendingar hafa lengi haft mikinn áhuga á tækni og fylgjast vel með nýjungum á því sviði. Þar er af nógu að taka en hér verður stiklað á stóru hvað varðar farsíma, mp3-spilara og flatskjái svo dæmi séu nefnd, en þetta eru meðal þeirra tækja sem Íslendingar hafa verið duglegir að fjárfesta í að undanförnu.
Tækin, sem allir þurfa að eignast, eru sífellt að verða öflugri og bylting nútímans er stafræn. Forsvarsmenn netleitarinnar Google leggja t.a.m. mikið upp úr því að stafrænar upplýsingar verði öllum aðgengilegar á hvers kyns tölvubúnaði alls staðar og alltaf. Tæknifyrirtæki leggja nú mikla áherslu á það sem kallast á ensku "convergence" tækni, en það er þegar margs konar tækni er að finna í einu og sama tækinu. Sími er ekki lengur bara sími. Nú er hægt að fá farsíma sem er í senn mp3-spilari, dagbók, stafræn ljósmyndavél, vekjaraklukka og útvarp, svo nokkur dæmi séu tekin. Í nánustu framtíð getur fólk svo væntanlega keypt sér síma sem eru útbúnir stafrænum sjónvarpsmóttakara.
Þá er ljóst að flatskjáir eru að ryðja hefðbundnum sjónvörpum brott. Hægt er að fá svokallaða LCD-skjái eða plasmaskjái. Margir átta sig ekki almennilega á muninum á þessu tvennu. Það er svo sem ekki að undra því tækin eru afar áþekk í útliti. Í tenglinum Íslendingar vilja fá sér flatskjái hér til hliðar er gerð tilraun til þess að gera þessu tvennu skil.
Það hefur rutt þessari tæknibyltingu braut, að verð á þessum tækjum fer hríðlækkandi. Dæmi eru um að 30 tommu LCD-sjónvarpstæki hafi kostað um 600.000 kr. fyrir um ári. Í dag kostar hins vegar stærra tæki, 32ja tommu LCD-sjónvarpstæki, nærri 250.000 kr. Það er þó ljóst að þessi tæki kosta sitt en það er bara að bíða og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér í þessum efnum.
Nýafstaðin er tæknisýning í Las Vegas í Bandaríkjunum sem ber heitið
„Consumer Electronics Show“ (CES) en þar komu saman allir helstu
framleiðendur tæknibúnaðar og kynntu helstu nýjungar sem væntanlegar eru.
Tæpt verður á því helsta sem þar kom fram ef smellt er á tengilinn hér
fyrir ofan. Þar er einnig að finna tengil á myndasýningu frá CES sem og
tengil inn á tæknifréttamiðilinn CNET. Þar er að finna ítarlega umfjöllun
um CES og þá hluti sem CNET þótti standa upp úr á sýningunni.
Nokkrar "tæknilegar" staðreyndir um okkur
Íslendingar eru meðal tæknivæddustu þjóða heims, en hér er tölva á nærri níu af hverjum tíu heimilum á Íslandi og 84% heimila eru tengd netinu. Þetta hlutfall er hvergi hærra í Evrópu. Þá nota 88% Íslendinga tölvu og 86% nota netið, flestir því sem næst daglega. Þrjú af hverjum fjórum nettengdum heimilum nota háhraðatengingu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Hagstofu Íslands á notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og netinu árið 2005.
Þá er sjónvarp og farsími inni á nærri öllum íslenskum heimilum, eða 98% heimila í báðum tilvikum. Myndbandstæki er að finna á 90% heimila, tölvu á 89% heimila og DVD-spilara á 74% þeirra. Þetta segir sína sögu varðandi tækniáhuga landsmanna.
Fyrirtæki sem selja tæknivörur á Íslandi eru allnokkur og hér er hægt að fá vörur frá öllum helstu raftækjaframleiðendum heims.






Senda inn efni
