[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík

Tækniumfjöllun

Á sunnudag lauk árlegu tæknisýningunni "Consumer Electronics Show" (CES) sem var haldin í Las Vegas í Bandaríkjunum. Þar komu saman allir helstu raftækjaframleiðendur heims og sýndu allt milli himins og jarðar. Þ. á m. agnarsmáa MP3 tónlistarspilara, nýjustu flatskjásjónvörpin og farsíma. Um 130.000 manns sóttu sýninguna í Las Vegas.

Tveir nýliðar á sýningunni vöktu þó einna mesta athygli en það voru veffyrirtækin Google og Yahoo. Þau stilltu sér upp við hlið stórra nafna í raftækjageiranum eins og Sony, Samsung og Toshiba.

Google og Yahoo lögðu áherslu á það á sýningunni að fólk gæti nálgast það efni sem það vildi þegar það vildi, t.d. sjónvarpsþætti og tónlist. Google tilkynnti þar að fyrirtækið hygðist opna vefverslun með sjónvarpsefni á Google-vefsíðunni. Þar gæti fólk nálgast vinsæla sjónvarpsþætti eins og CSI, Star Trek og Survivor, svo dæmi væru nefnd. Að sögn forsvarsmanna Google er hugmyndin sú að stafrænar upplýsingar verði öllum aðgengilegar með hvers kyns tölvubúnaði, alls staðar og alltaf. Umræddur búnaður er t.a.m. tölvur, farsímar, iPod mp3-spilarar o.fl.

Yahoo tilkynnti það á sýningunni að fyrirtækið mundi gera sínum notendum, sem eru um 450 milljónir, kleift að komast inn í tölvupóstinn sinn, myndaalbúm o.fl. í gegnum sjónvarp eða farsíma. Að sögn forsvarsmanna Yahoo er hugmyndin á bak við þetta sú að færa mikilvæga þjónustu Yahoo nær notendunum í sínu daglega lífi. Þeir segja að netið sé að breytast úr því að vera staður fyrir vefsíður yfir í það að vera tæki sem býður upp á alhliða þjónustu fyrir neytendur.


• Myndasyrpa frá CES raftækjasýningunni  •  Úttekt Cnet á CES hátíðinni í Las Vegas  •  Allt um tæknimál fyrir fyrirtæki

Til baka