[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík

Tækniumfjöllun

Hér á landi má búast við því að áhugasamir tækjakaupendur hafi úr nógu að velja líkt og að undanförnu. Hvað farsíma varðar þá er sífelld framþróun á því sviði eins og víða annars staðar.

Hjá fyrirtækinu Hátækni, sem er umboðsaðili fyrir Nokia á Íslandi, fengust þær upplýsingar að 15 símar eru væntanlegir frá Nokia á þessum ársfjórðungi, en búast má við yfir 40 nýjum símum á öllu árinu 2006. Magnús Viðar Skúlason, upplýsinga- og sölufulltrúi hjá Hátækni, segir að það sé möguleiki á einhverju stóru útspili hjá Nokia nú í febrúar, en hann segir þetta þó vera óstaðfestar fréttir. Nokia leggur mikla áherslu á það að stefna saman mörgum tækjum í eitt að sögn Magnúsar, en margir Íslendingar eiga nú síma sem eru með myndavél, útvarpi, mp3-spilara, nettengingu o.fl. Allt þetta er að finna í einum farsíma. Magnús segir Nokia einnig leggja áherslu á svokallað "Business center" sem býður upp á það að fólk komist inn í tölvupóstinn sinn í gegnum símann ásamt fleiru (Nokia Business Center er lausn sem byggir á svipaðri tækni og BlackBerry-lausnin byggir á). Hugmyndin sé að vissu leyti sú að athafnafólk geti verið með skrifstofuna í vasanum ef svo má segja. Aðspurður segir Magnús þróunina einnig vera í áttina að einfaldari tækjum fyrir þá sem telja sig ekki hafa þörf fyrir alla þá aukahluti sem nú er hægt að koma fyrir í einum litlum síma. Þá er von á síma sem er með stafrænum sjónvarpsmóttakara í sumar.

Guðni Kristjánsson, hjá Tæknivörum, sem er umboðsaðili fyrir Sony-Ericsson, Samsung og Motorola farsíma, hafði sömu sögu að segja varðandi farsímaþróun, þ.e. margs konar tækni er að finna í einum síma. Hann segir t.d. að Samsung D600 síminn sé með sjónvarpstengi. Með því má tengja hann við skjávarpa, sjónvarp eða tölvu, og nýta hann til þess að sýna glærur, svo dæmi sé nefnt. Guðni segir Sony Ericsson-símana vera mikið að færa sig yfir í tónlist og myndir. Hann segir að í Sony Ericsson W800 farsímanum sé að finna fullkominn mp3-spilara, sem er með stækkanlegu minni. Þá segir hann að myndavélarnar í símunum séu orðnar afar góðar. Um sé að ræða 2ja megapixla myndavél með sjálfvirkum fókus. Einnig er hægt að fá aukalega flasskubb fyrir næturskot. Símar með 3,2ja megapixla myndavélar með innbyggðu flassi eru hins vegar væntanlegir að sögn Guðna. Aðspurður segir hann að menn þurfi ekki að vera tækjaóðir til þess að læra á slík tæki, því lagt sé upp úr því að hafa þá auðvelda í notkun.


• Allt um farsíma á gsmarena.com
Til baka