![]() |
![]() |
Sömu sögu segir Bragi Guðmundsson, sölustjóri hjá Bræðrunum Ormsson, varðandi túbuna. Hann segist hafa fundið fyrir gríðarlega mikilli eftirspurn eftir flatskjám, þ.e. LCD og plasma. Hann segir mest selt af 32ja tommu flatskjám sem aðalsjónvarp en þó sé hægt að fá flestar stærðir. T.a.m. eru 15 tommu flatskjáir orðnir vinsælir sem eldhússjónvarpstæki. Bragi segir að flatskjáir eyði minna rafmagni en hefðbundin sjónvörp, taki minna pláss o.fl. Eitt mest selda sjónvarpið fyrir síðustu jól hjá Bræðrunum Ormsson var 43ja tommu Pioneer plasmatæki, en það kostar 399.900 kr.
Þá segir Bragi jafnframt mikla eftirspurn vera eftir DVD-skrifurum, en þeir eru með hörðum diski sem getur tekið upp sjónvarpsefni o.fl.
| Útskýringar á plasma og LCD sjónvörpum |
Til baka








Senda inn efni




