![]() |
Steingrímur Árnason, hjá Apple, segir það vera nokkuð nærri lagi, en Steve Jobs, forstjóri Apple, hefur sagt að mp3 heimsmarkaðshlutdeild fyrirtækisins sé á bilinu 70-80%. Steingrímur segir að það megi bæta um 10% ofan á þá tölu hér á Íslandi. Hann telur að aðrir mp3-spilarar deili afganginum af markaðskökunni sín á milli.
Af þeim iPod-spilurum sem eru í boði hér er iPod Nano spilarinn afar vinsæll meðal unglinga. Mikið af spilurunum sem eru í notkun hér á landi er hins vegar keypt erlendis, þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Steingrímur segir hátt verð spilaranna hér á landi liggja í þeim ofurtollum sem íslenska ríkið leggi á vöruna. Í undirbúningi er málsókn fyrirtækisins á hendur íslenska ríkinu vegna ofurtollanna að sögn Steingríms.
Eitt af því sem á eftir að ryðja sér til rúms hér á landi að sögn Steingríms er svokallað "podcast", en það er útvarp sem miðlað er í gegnum netið. Þá getur fólk nálgast þá þætti sem það vill hlusta á hvenær sem er. Þetta er þó gerólíkt þeim útvarpssendingum um netið sem flestir þekkja. Upptökur eru sendar á ákveðna miðlara þar sem þeim er safnað saman. Ókeypis hugbúnaður gefur svo fólki um allan heim tækifæri til að sækja þessa þætti og hlusta á þá hvar og hvenær sem er á mp3-spilara eins og iPod frá Apple, en nafnið er komið þaðan (samsett úr iPod og broadcasting). Podcast er þó ekki einvörðungu bundið við útvarp heldur er einnig hægt að nálgast myndefni eins og sjónvarpsþætti og tónlistarmyndbönd.
Apple í samstarf við Intel
Á þriðjudaginn kynnti Steve Jobs, forstjóri Apple, stórar breytingar á Mac-tölvunum en Apple hefur nú hafið samstarf við Intel örgjörvafyrirtækið. Frá og með 10. janúar verða því allar Apple-tölvur með Intel örgjörva sem mun margfalda afkastagetu vélanna.
Jobs kynnti jafnframt iPod Radio Remote, en um er að ræða fjarstýringu fyrir iPod-spilarann sem gerir notendum kleift að flakka á milli laga og stilla hljóðstyrk spilarans auk þess að stilla á þá útvarpsstöð sem hlusta skal á hverju sinni. Engu skiptir þótt spilarinn sé í jakkavasa eða bakpoka viðkomandi.
| Myndskeið: Apple notar örgjörva frá Intel í tölvum |






Senda inn efni


