![]() |
Mikil áhersla er lögð á leiki í efnisgáttinni Vodafone live! en þar geta notendur sótt sér þrautir, íþróttaleiki, skotleiki, kappakstursleiki og fjölda annarra tegunda af leikjum.
Meðal annarra nýjunga eru Simply-farsímar sem eru sérstaklega hannaðir fyrir þá sem vilja einföld símtæki sem einskorðast að mestu leyti við tal og SMS. Þá er í boði sérstök gjaldskrá fyrir Simply-notendur. Slík þjónustuleið býr yfir einu verði hvort sem hringt er í GSM eða fastlínu innan og utan kerfis.
Þá hefur Og Vodafone innleitt Mobile Office; þráðlausar samskiptalausnir fyrir atvinnulífið. Slíkar lausnir gera notendum mögulegt að miðla upplýsingum og gögnum óháð stað og stund. Meðal þeirra lausna sem er að finna í Mobile Office er BlackBerry og Vodafone Mobile Connect. BlackBerry gerir notendum mögulegt að vera í stöðugum tengslum við viðskiptavini og samstarfsmenn. BlackBerry er farsími og veitir notendum einnig aðgang að tölvupósti, dagbók, tengiliðalista og vefnum í rauntíma - án þess að notendur þurfi að bíða eftir póstinum.
![]() |
Síminn segir að sjálfvirkni og fjargæsla heimila opni t.d. nýjar víddir fyrir almenning. Þar megi nefna hitastýringu heimila í gegnum farsíma sem geti t.d. hentað sumarhúsaeigendum vel. Auk þess verði mögulegt að tengja eftirlitsmyndavélar við farsíma. Talsmenn Símans segja að fyrirtækið geti vel hugsað sér að fara út í frekari öryggisþjónustu.
Þá segir að meðal helstu nýjunga núna sé það að viðskiptavinir Símans geti lesið og svarað tölvupósti í farsíma, sem henti bæði fyrirtækjum og einstaklingum. Síminn hefur sett á markað þrjár hugbúnaðarlausnir fyrir farsíma- og lófatölvur. Lausninar eiga það sameiginlegt að veita viðskiptavinum færi á að vera í stöðugu sambandi við tölvupóst, dagbók og tengiliði. Talsmenn Símans segja að fyrirtækið muni auka aðgengi þeirra sem nota síma í atvinnuskyni að fjarskiptaþjónustu, upplýsingum og samskiptum við aðra annars vegar með sérstökum hugbúnaði og hins vegar með nýrri tegund símtækja.
Þá er leggur Síminn, líkt og Og Vodafone, áherslu á á afþreyingu í farsíma, s.s. tónlist, leiki og fleira. Síminn segir að farsíminn komi til með að leysa af hólmi geislaspilarann, stafrænu myndavélina og jafnvel þjóna leikjaáhugamönnum en fyrst og fremst verður farsíminn til að eiga símtöl áfram.
| Heimasíða OgVodafone Heimasíða Símans |








Senda inn efni



