Britney segist ekki vera lengur jómfrú

Söngkonan Britney Spears.
Söngkonan Britney Spears.

Bandaríska söngkonan Britney Spears segist ekki lengur vera jómfrú, að því er fram kemur í viðtali við tímaritið W. Hún segist einungis hafa sængað með Justin Timberlake, en það hafi átt sér stað eftir að parið hafi hitt hvort annað í tvö ár.

"Ég hélt að hann væri sá rétti, en skjátlaðist," segir Spears, en hún hefur gefið hefur í skyn í gegnum árin að hún sé jómfrú og hafi ekki í hyggju að stunda kynlíf fyrr en að brúðkaupi loknu. Hún segir nú að tími sé til kominn að gleyma Timberlake og kynnast öðrum karlmanni. Spears, sem er 21 árs, hefur að undanförnu sést með írska leikaranum Colin Farrell og viðurkennir að hafa kysst hann.

"Já ég kyssti hann," segir Spears og sparar ekki hástemmd lýsingarorð í garð leikarans í samtali við W. "Hann er slæmur strákur, en það ristir samt ekki djúpt," segir Spears um Farrell.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant