Romeo Beckham fékk skurð á höfuðið

Victoria og David Beckham með soninn Brooklyn.
Victoria og David Beckham með soninn Brooklyn.

Yngri sonur enska knattspyrnumannsins Davids Beckhams var fluttur á sjúkrahús í Madríd í gær eftir að hann datt í lyftu og fékk skurð á höfuðið.

Drengurinn, sem heitir Romeo og er eins árs gamall, var með Söndru ömmu sinni og Brooklyn bróður sínum í El Cortes Ingles-verslunarmiðstöðinni í Madríd þegar hann datt. Sauma þurfti tvö spor í enni hans en mikið blæddi úr sárinu.

Breska blaðið The Sun hefur eftir ættingja drengsins að Romeo sé nýlega farinn að ganga og sé því óstyrkur á fótunum.

Beckham og Victoria kona hans flýttu sér á sjúkrahúsið þegar þau heyrðu af slysinu. Beckham leikur fyrsta leikinn með Real Madrid í Meistaradeild Evrópu á Bernabeu-leikvanginin í Madríd síðar í dag gegn franska liðinu Olympique Marseille.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant