Kennari henti tveimur nemendum út um glugga

Tveir drengir í Marokkó slösuðust þegar kennari henti þeim út um glugga á kennslustofu, sem var á fyrstu hæð, fyrir ólæti. Annar drengjanna, sem er 9 ára, var fluttur á sjúkrahús með alvarlega höfuð- og andlitsáverka. Þá slasaðist hann einnig á öxl. Hinn drengurinn, sem er 10 ára, slasaðist minna.

Kennarinn, sem er kona, hafði hótað að henda þeim út ef þeir yrðu ekki stilltir, en drengirnir virtu ekki ósk hennar, að sögn ITV í Bretlandi. Haft er eftir embættismanni í Marokkó að kennarinn væri dapur yfir atvikinu, en að drengirnir hefðu átt að hlusta á kennarann. Ekki liggur fyrir hvort kennaranum verði refsað.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant