Viðhafnarútgáfa á þeim tveimur mynddiskum sem út hafa komið með Hringadróttinssögu; Föruneyti hringsins og Tveggja turna tali, er uppseld hérlendis og sömuleiðis hjá útgefanda. Ný sending er væntanleg á næstu vikum. Þegar allt er saman tekið hefur Hringadróttinssaga á mynddiskum selst í 38.000 eintökum hérlendis.
Þá hefur leikstjóri þríleiksins, Peter Jackson, staðfest að lengri mynddiskaútgáfan af síðustu myndinni,Hilmir snýr heim, sú sem kemur út í nóvember, eða um það leyti, verði á sjöttu klukkustund!
Gagnasafn Mbl: Hefur selst í 38 þúsund eintökum