Bruce Springsteen á Íslandi

Bruce Springsteen verður á Nasa í kvöld.
Bruce Springsteen verður á Nasa í kvöld. AP

Bandaríski tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen er nú staddur hér á landi í boði Björgvins Halldórssonar, en Springsteen syngur með Björgvini í lagi á væntanlegri plötu þess síðarnefnda sem kemur út í haust. Springsteen heldur af landi brott um helgina en hyggst halda eina tónleika hér á landi, í kvöld, áður en hann heldur heim á leið.

Að sögn Björgvins kynntist hann Springsteen í samkvæmi hjá Sigurjóni Sighvatssyni í Los Angeles fyrir tveimur árum og hefði Springsteen þá stungið upp á því að þeir myndu taka lagið saman einhvern tíma. Upphaflega hefði staðið til að Springsteen syngi með Björgvini á síðustu plötu hans, Dúett, en af því varð ekki vegna anna Springsteens. Nú hafi Springsteen aftur á móti gefist tími til verksins en hann hafi frekar kosið að taka lagið upp hér á landi en að Björgvin flygi til New York. "Hann vildi kynnast landi og þjóð og íslenskum vetri," segir Björgvin og bætir við að þeir hafi meðal annars farið í jöklaferð og í gufubaðið á Laugarvatni.

Að sögn Björgvins langaði Springsteen að þakka fyrir góðar móttökur með tónleikum hér á landi áður en hann hyrfi af landi brott og þá að koma fram einn með kassagítarinn eins og hann gerði iðulega. "Hann ætlar að renna yfir ferilinn, enda hefur hann ekki spilað fyrir Íslendinga áður," segir Björgvin. "Það er hinsvegar óvíst að ég eigi eftir að syngja nokkuð með honum í kvöld, ég kann þessi lög ekki nógu vel."

Einar Bárðarson hjá Consert ehf. hefur veg og vanda af skipulagningu tónleikanna og hann segir að Springsteen hafi lagt áherslu á að hafa allt eins einfalt og unnt væri. "Hann bað líka um að aðgangseyririnn rynni til líknarmála," segir Einar og bætir við að tónleikarnir hefjist kl. 21.00 og standi fram undir miðnætti, enda sé tónleikadagskráin á þriðja tíma. Miðasala hefst kl. 12.00 í Nasa og aðeins verða 400 miðar seldir, enda húsrými takmarkað. Miðaverð er 3.500 kr.

Í tilefni af tónleikunum býður mbl.is áhugasömum upp á að skrá sig á gestalista, en tíu nöfn verða dregin úr þeim sem skrá sig og fá hinir heppnu ókeypis aðgang að tónleikunum og að hitta Springsteen og Björgvin að loknum tónleikum og þiggja veitingar í boði tónleikahaldara.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant