Söngleikurinn Hárið sýndur á Akureyri í september

Frá sýningu á Hárinu í Austurbæ. Hárið verður sýnt á …
Frá sýningu á Hárinu í Austurbæ. Hárið verður sýnt á Akureyri í september. mbl.is/ÞÖK

Leikfélag Akureyrar hefur gengið frá samkomulagi við aðstandendur Hársins í Reykjavík og knattspyrnudeildar Þórs um að sýna Hárið á Akureyri í lok september. Sýnt verður í Íþróttahöllinni á Akureyri sem tekur um 1700 manns í sæti. Segir í tilkynningu frá Leikfélagi Akureyrar að sýningarnar á Hárinu séu liður í nýrri stefnu Leikfélagsins sem miði að því að bjóða upp á fleiri gestasýningar á Akureyri í bland við eigin uppsetningar leikhússins.

Innan skamms mun Leikfélag Akureyrar kynna vetrardagskrá sína. Fram kemur í tilkynningunni að leikhúsið muni setja sjálft upp fjórar sýningar sem frumsýndar verða á Akureyri á leikárinu, en einnig flytja til bæjarins að minnsta kosti fjórar gestasýningar, þrjár frá Reykjavík og eina erlendis frá. Þegar dagskrá vetrarins verður kynnt hefst sala á áskriftarkortum, en þar geta áhorfendur valið sjálfir fjórar sýningar af verkefnaskrá vetrarins, þeirra á meðal Hárið. Almenn miðasala á Hárið á Akureyri hefst á sama tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson