Sölumaður deyr, hið sígilda leikrit Arthurs Miller, var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á föstudaginn. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir en þetta er fyrsta leikstjórnarverkefni hennar í um tvö ár. Pétur Einarsson fer með hlutverk andhetjunar Willy Lomans sölumanns sem trúir í blindni á ameríska drauminn en með önnur hlutverk fara m.a. Hanna María Karlsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Björn Hlynur Haraldsson. Á myndinni sést Þórhildur óska Pétri til hamingju að lokinni frumsýningu.