Festist í strompi

Íbúðareigandi, sem hugðist komast inn í fjölbýlishús í austurhluta Reykjavíkur í morgun, festist í strompi hússins og þurfti að bíða í klukkustund þar til lögregla kom honum til aðstoðar. Maðurinn fór niður strompinn skömmu fyrir sjö og var kominn fjóra metra niður þegar hann festist.

Maðurinn, sem kvaðst hafa læst sig úti, mun hafa kallað á hjálp og fékk að lokum aðstoð lögreglu. Honum varð ekki meint af, að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert