Kubrick-maraþon í Loftkastalanum

Stanley Kubrick fæddist árið 1928 og lést árið 1999.
Stanley Kubrick fæddist árið 1928 og lést árið 1999.

Samtökin Bíó-Reykjavík hafa verið stórvirk í alls kyns uppákomum tengdum kvikmyndamenningu, þann stutta tíma sem þau hafa verið starfandi (tæpt ár). Þau hafa t.d. staðið fyrir opnum kvöldum í sal MÍR, hvar ungir kvikmyndagerðarmenn geta mætt með myndir sínar til sýninga. Síðasta haust var svo haldið 44 tíma kvikmyndamaraþon þar sem myndir úr hinum ólíkustu geirum voru sýndar sleitulaust.

Föstudaginn 10. janúar verður sams konar maraþon en þá verða allar myndir leikstjórans Stanley Kubricks sýndar í röð, frá þeirri fyrstu til þeirrar síðustu. Fer atið fram í Loftkastalanum og byrja sýningar kl. 22 á föstudagskvöldið og lýkur snemmmorguns á sunnudag.

Það sem er hvað merkilegast við þennan atburð er að fjórar fyrstu myndirnar, þrjár stuttmyndir og ein í fullri lengd, eru nær aldrei sýndar. Fyrsta mynd hans, Fear and Desire ('53) var til að mynda týnd í áratugi en fullkomnunarsinninn Kubrick lét brenna öll afrit af myndinni á sínum tíma! Það er aðeins fyrir elju og þrjósku kvikmyndaáhugamanna að loks tókst að grafa upp sýningarhæft eintak. Það verður þá að teljast til tekna, í bókstaflegri merkingu, að aðgangur að öllu havaríinu er frír. Þá mun Gio Shanger hjá Bíó Reykjavík halda stutta tölu fyrir hverja mynd og kynna þær.

"Í maraþoninu sem við héldum síðasta haust voru það myndir Kubricks sem nutu mestra vinsælda," segir Gio. "Við ætlum að setja upp skoðanakönnun á vefsetrinu okkar og spyrja fólk hvaða leikstjóra það haldi mest upp á. Svo setjum við fleiri svona maraþon í gang í framhaldinu af því."

Margt er á prjónunum hjá Gio og félögum í framhaldinu. T.d. er ein hugmyndin að sýna spagettívestra Sergio Leone og bjóða upp á spagettí um leið, siður sem er vinsæll í heimaborg Gio, Toronto, en hann hefur verið virkur þátttakandi í kvikmyndalífi þeirrar borgar, allt frá 1978. Toronto er annars einn helsti aldingarður lifandi kvikmyndamenningar í heiminum í dag og orka og æði Gios því skiljanlegt. Það sem brennur þó mest á félaginu um þessar stundir er að ýta úr vör beinum netútsendingum á kvikmyndum, þar sem kvikmyndaáhugamenn um allan heim gætu tengst, spjallað og skipst á hugmyndum. Áætlað er að standa fyrir þess háttar kvöldi 1. apríl næstkomandi.

Eins og segir hefst Kubrick-maraþonið kl. 22 á föstudagskvöldið. Þeim sem vilja taka með sér svefnpoka er það frjálst...

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant