Flugfélagið Atlanta hyggst flytja höfuðstöðvar félagsins úr Mosfellsbæ í byggingu Landsafls við Höfðabakka í Reykjavík. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, kveðst hafa fengið tilkynningu um þessa ákvörðun félagsins í tölvupósti síðastliðinn föstudag og að þar hafi jafnframt verið sagt að ákvörðunin yrði tilkynnt formlega með sendibréfi. Rúmlega 100 starfsmenn flytja með fyrirtækinu til Reykjavíkur en tæknideild verður áfram í Mosfellsbæ.
"Forsvarsmenn Atlanta sóttu það stíft fyrir áramót að fá lóð í Mosfellsbæ undir nýjar höfuðstöðvar. Töldu þeir sig hafa fundið ákjósanlega staðsetningu á athafnasvæði í Krikahverfi sem bæjaryfirvöld drifu í að deiliskipuleggja í framhaldinu. Í febrúar urðu síðan eigendaskipti hjá fyrirtækinu og stríð í Írak var yfirvofandi. Þá fengum við bréf þar sem sagði að ákvarðanatöku varðandi nýbyggingu höfuðstöðvanna hefði verið frestað þar til í ágúst. Síðan heyrum við ekkert þar til nú, að bæjaryfirvöldum er tilkynnt þessi niðurstaða með tölvubréfi," segir Ragnheiður.
Forsvarsmenn Atlanta vildu ekki tjá sig um málið í gær.