Ísraelsher viðurkennir mistök

Ísraelsher for á fimmtíu skriðdrekum inn í Nablus í gær.
Ísraelsher for á fimmtíu skriðdrekum inn í Nablus í gær. AP

Talsmaður Ísraelshers hefur viðurkennt að hermenn hafi gert mistök er þeir hófu skothríð á mannmörgu markaðstorgi í bænum Jenin á Vesturbakkanum í gær en Palestínumenn segja að þrjú börn og einn fullorðinn hafi látist í árásinni. Líklegt er talið að rekja megi árásina til misskilnings. Talsmaður hersins segir að hermenn hafi skotið tveimur skriðdrekaskotum til að tvístra mannfjölda sem hafi brotið útgöngubann en íbúar Jenin eru sagðir hafa talið að útgöngubanni hafi verið aflétt er árásin var gerð.

Palestínumaður er sagður hafa látist er hópur Ísraela fór inn í þorp Palestínumanna í nágrenni Nablus á Vesturbakkanum í gærkvöldi. Fólkið, sem var að koma frá útför fimm ísraelskra landnema sem Palestínumaður skaut til bana á fimmtudag, skaut af handahófi út í loftið og kveikti í bílum. Þá skaut Ísraelsher fjóra Palestínumenn til bana á Gazasvæðinu í nótt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert